Showing posts with label Pétur. Show all posts
Showing posts with label Pétur. Show all posts

Sameinum krafta okkar.

Elsta brellan í handbókinni "Að stöðva vakningu" eftir "Hornóttur666" og sú sem er áhrifaríkust er að skapa tortryggni og óeiningu meðal trúaðra.
Þessi brella var fyrst notuð til að fá Adam og Evu til að tortryggja orð Guðs og gefa í skyn að Guð væri að fara á bak við þau. Efasemdir vöknuðu í hjörtum þeirra og í stað þess að deila tilfinningum sínum og hugsunum með honum, tóku þau ákvörðun byggða á tortryggni og efa.

Frá því að ég byrjaði að kenna og predika reglulega 17 ára, hef ég séð þetta mynstur birtast í mörgum myndum og fullyrði að enginn einstaklingur, hópur eða samfélag er ónæmt fyrir þessu. Í dag, 20 árum seinna, tel ég það vera skyldu mína og kall að miðla þessu og öðrum atriðum sem ég hef upplifað á göngu minni með Drottni í þeirri trú og von að það megi verða líkama Krists til blessunar.

Ég legg af stað í vanmætti og veikleika en einnig í hlýðni því þetta er nokkuð sem Drottinn hefur kallað mig til að gera og ég trúi því að hann muni styrkja mig og leiða mig skref fyrir skref.

Ég ber einlægan kærleika í hjarta mínu til systkina minna úr mörgum samfélögum og kirkjum og bið fyrir því að Drottinn mætti vekja upp sannan og djúpan systkina kærleika meðal okkar og færa okkur nær hvort öðru og nær hjarta Jesú.